
Um bókina
Jóhanna hefur alltaf falið sig á bakvið píanóið og leitað skjóls í tónlistinni. En þegar hún hittir Kristján, kennarann sem sér hæfileika hennar, og kannski einhvað meira, neyðist hún til að stíga fram úr skugganum. Mun hún geta tekist á við nýja ást þegar sársauki fortíðarinnar eltir hana?
„Ég sit þarna þangað til það er hringt út úr tímanum. Þá stend ég upp og bíð eftir því að Kristján komi út. Hann er síðastur út úr stofunni. Ég legg af stað þegar hann kemur fram. Þá lítur út fyrir að við séum að rekast hvort á annað af tilviljun. Ég geng líklega aðeins of langt því ég rekst bókstaflega utan í hann.“
Jóhanna var lögð í einelti í Akraskóla og ætlar að byrja upp á nýtt í nýjum skóla, þar sem Inga og Ella eru með henni í bekk. Þar hittir hún afleysingarkennarann Kristján, sem er aðalsöngvarinn í hljómsveit. Jóhanna elskar að syngja og skráir sig í söngleikinn sem Kristján leikstýrir. Eina vandamálið er að Jóhanna verður yfir sig ástfangin af honum…
Ef þú hafðir gaman að Better Than the Movies þá gæti Elskar mig, Elskar mig ekki serían verið fullkomin fyrir þig – full af tilfinningum, vináttu og flóknu ástarlífi.
Elskar mig, elskar mig ekki
Elskar mig, elskar mig ekki er sería um fjórar vinkonur og þeirra fyrstu reynslu af ástinni.
Line Kyed Knudsen (f. 1971) kom fyrst fram sem höfundur barna- og ungmennabóka árið 2003. Line skrifaði bækurnar um Lísu og Emmu og einnig seríuna K fyrir Klara, sem hafa verið þýddar yfir á mörg tungumál á undanförnum árum og njóta gríðarlegra vinsælda á heimsvísu. Hún er nú orðin einn af langvinsælustu höfundum bóka fyrir þennan aldurshóp og hafa bækur hennar hlotið fjölda bókmenntaverðlauna.
Elskar mig
Bók 4 af 8

Elskar mig, elskar mig ekki 1 – Við Alexander

Elskar mig, elskar mig ekki 1 – Við Alexander

Elskar mig, elskar mig ekki 2 – Við Marco

Elskar mig, elskar mig ekki 2 – Við Marco

Elskar mig, elskar mig ekki 3 – Við Jónas

Elskar mig, elskar mig ekki 3 – Við Jónas

Elskar mig, elskar mig ekki 4 – Við Kristján

Elskar mig, elskar mig ekki 4 – Við Kristján
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app