
Um bókina
Ef þú myndir hitta draumaprinsinn, myndir þú gera hvað sem er til að heilla hann? Inga hefur alltaf verið góð í að segja sögur en þær eru oft ekki sannar. Getur Inga fundið sanna ást þegar hún er föst í neti blekkinga sem hún hefur sjálf spunnið?
„Ég hoppa í sófanum og það er eins og hjartað í mér sé að springa. Hann spurði sjálfur hvort við ættum að hittast á morgun! Hann bauð mér eiginlega að koma með sér niður á engið.“
Inga hefur aldrei verið ástfangin áður. En síðan hittir hún Marco, sem lítur nákvæmlega eins út og prinsinn í draumum hennar. Í fyrsta skiptið á ævinni finnur hún fyrir fiðringi í maganum og verður vongóð um að finna loksins ástina. Það er samt eitt vandamál, hún hefur þegar sagt já við að vera kærasta Alexanders og nú þarf hún að ljúga að bæði honum og Marco. Það er þá sem hún kemur sér í vandræði...
Ef þú ert að leita að annarri seríu sem sameinar rómantík, unglinga drama og sterk tengsl á milli persóna líkt og The Summer I Turned Pretty, þá er Elskar mig, elskar mig ekki serían frábær kostur.
Elskar mig, elskar mig ekki
Elskar mig, elskar mig ekki er sería um fjórar vinkonur og þeirra fyrstu reynslu af ástinni.
Line Kyed Knudsen (f. 1971) kom fyrst fram sem höfundur barna- og ungmennabóka árið 2003. Line skrifaði bækurnar um Lísu og Emmu og einnig seríuna K fyrir Klara, sem hafa verið þýddar yfir á mörg tungumál á undanförnum árum og njóta gríðarlegra vinsælda á heimsvísu. Hún er nú orðin einn af langvinsælustu höfundum bóka fyrir þennan aldurshóp og hafa bækur hennar hlotið fjölda bókmenntaverðlauna.
Elskar mig
Bók 2 af 8

Elskar mig, elskar mig ekki 1 – Við Alexander

Elskar mig, elskar mig ekki 1 – Við Alexander

Elskar mig, elskar mig ekki 2 – Við Marco

Elskar mig, elskar mig ekki 2 – Við Marco

Elskar mig, elskar mig ekki 3 – Við Jónas

Elskar mig, elskar mig ekki 3 – Við Jónas

Elskar mig, elskar mig ekki 4 – Við Kristján

Elskar mig, elskar mig ekki 4 – Við Kristján
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app