Heim › ...
Elskar mig, elskar mig ekki 1 – Við Alexander eftir Line Kyed Knudsen - hljóðbók

Elskar mig, elskar mig ekki 1 – Við Alexander

1 klst 43 mín
Saga Egmont
Bók 1 af 8 í Elskar mig

Um bókina

Soffía hefur alltaf verið skynsöm en þrá hennar til Alexanders og vinátta hennar og tryggð gagnvart Ingu rekst saman. Hún flækist í vef vináttu, ástar og svika sem erfitt er að komast út úr. Er einn strákur þess virði?

„Alexander er að spyrja Ingu hvort hún vilji vera kærastan hans. Og þótt ég sé skotin í honum krossa ég fingur og vona að Inga segi já. Það væri best því þau passa svo vel saman. Ég næ hvort sem er aldrei í hann.“

Soffía hefur verið skotin í Alexander í laumi í mörg ár en það er besta vinkona hennar, Inga, sem endar á því að verða kærastan hans. Einn daginn kemst Alexander að því að Soffía hefur aldrei kysst strák áður og einhverra hluta vegna verður hann mjög spenntur fyrir því að kenna henni hvernig það er gert…

Elskar mig, elskar mig ekki serían hentar vel fyrir aðdáendur My Life With The Walter Boys sem þrá fleiri sögur um ást, vináttu og drama.

Bókin var tilnefnd til Bogslugerprisen árið 2013.

Elskar mig, elskar mig ekki

Elskar mig, elskar mig ekki er sería um fjórar vinkonur og þeirra fyrstu reynslu af ástinni.

Line Kyed Knudsen (f. 1971) kom fyrst fram sem höfundur barna- og ungmennabóka árið 2003. Line skrifaði bækurnar um Lísu og Emmu og einnig seríuna K fyrir Klara, sem hafa verið þýddar yfir á mörg tungumál á undanförnum árum og njóta gríðarlegra vinsælda á heimsvísu. Hún er nú orðin einn af langvinsælustu höfundum bóka fyrir þennan aldurshóp og hafa bækur hennar hlotið fjölda bókmenntaverðlauna.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán