Heim › ...
Einvígið eftir Arnaldur Indriðason - hljóðbók

Einvígið

9 klst 21 mín
Vaka-Helgafell
Bók 12 af 15 í Erlendur

Um bókina

Sumarið 1972 er Reykjavík í uppnámi; heimsmeistaraeinvígið í skák er að hefjast í Laugardalshöll og bærinn fullur af útlendingum. Kalda stríðið er í algleymingi og fulltrúar austurs og vesturs fylgja sínum mönnum, Spassky og Fischer, að taflborðinu. Meðan undirbúningurinn stendur sem hæst fer meinlaus unglingspiltur í bíó og verður fyrir fólskulegri árás. Lögreglan er önnum kafin en Marion Briem, sem stýrir rannsókn málsins, einsetur sér að skilja það einvígi sem þarna er háð með lífið að veði.

Í fimmtándu skáldsögu Arnaldar Indriðasonar mynda sannsögulegir atburðir rammann um grípandi frásögn af hörmulegri mannfórn. Enginn íslenskur höfundur hefur notið viðlíka vinsælda og Arnaldur síðustu ár, hér heima jafnt sem erlendis. Bækur hans hafa verið þýddar á tugi tungumála, selst í milljónum eintaka og hlotið frábæra dóma hvarvetna.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán