
Um bókina
Lögreglan finnur lík af manni í íbúð í miðborg Stokkhólms. Stöng hefur verið rekinn gegnum bringuna, bitför sjást á hálsinum og maðurinn liggur nakinn í herbergi sem ber greinileg merki um helgiathöfn.
Það kemur hins vegar rannsóknarlögreglukonunni Rebeccu Kraft í opna skjöldu að fórnarlambið reynist vera maður sem tengist fortíð hennar. Böndin berast fljótlega að leynilegum félagsskap sem starfar neðanjarðar í Stokkhólmi.
Í dimmum göngum og yfirgefnum herbergjum er þar einnig að finna sveit erlendra úrvalshermanna. Hvað eiga þessir hópar sammerkt og hvernig tengjast þeir morðinu? Þegar rannsóknin tekur svo óvænta stefnu og beinist að Þjóðminjastofnun kemur ýmislegt í ljós sem Rebeccu og félaga hennar hefði aldrei órað fyrir.
Morðgátur Stokkhólms
Bók 3 af 4
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app



