Vika 41 og 42 · 5. til 18. október 2026

Nýjar bækur vikunnar

Tvær vikur í einu: sjö nýjar bækur, frá ástarsögu sem spannar kynslóðir til fyrstu skáldsögu Esterar Hilmarsdóttur.

Bók vikunnar

Skáldsaga
Halló mín fagra

Ann Napolitano

Íris Tanja Flygenring les · 14 klst 44 mín

Getur ástin gert brotna manneskju heila? William Waters ólst upp á heimili sem harmleikur hafði breitt þögn yfir. Þegar hann kynnist hinni lífsglöðu og metnaðarfullu Juliu Padavano á fyrsta ári í háskóla er því eins og skyndilega birti til í kringum hann. Hjá Padavano-fjölskyldunni kynnist William áður óþekktri lífsfyllingu. En þá skýtur myrkrið úr fortíð Williams aftur upp kollinum.

Halló, mín fagra er afar áhrifamikil saga um það sem getur gerst þegar við veljum að elska manneskju, ekki þrátt fyrir það hver hún er, heldur einmitt vegna þess. Ingunn Snædal þýddi.

Skoða bókina

Frá höfundi Vatn á blómin

Skáldsaga
Þau sem gleymast á sunnudögum

Valérie Perrin

Sigrún Hermannsdóttir les · 9 klst 10 mín

Justine hefur búið hjá ömmu sinni og afa síðan foreldrar hennar létust í bílslysi. Hún er ánægð í starfi á elliheimili bæjarins og nýtur þess að hlusta á sögur gamla fólksins. Þannig tengist hún Hélène Hel, næstum hundrað ára gamalli konu sem lætur sig dreyma um löngu liðinn tíma.

Angurvær saga um ást, sorg og fortíð sem virðist aldrei alveg vera liðin. Kristín Jónsdóttir þýddi.

Skoða bókina

Fyrsta skáldsagan

Skáldsaga
Sjáandi

Ester Hilmarsdóttir

Arndís Hrönn Egilsdóttir les · 9 klst 21 mín

Þegar dularfull spákona úr austri birtist í friðsælum dal í íslenskri sveit fara ævintýralegir hlutir að gerast og allt sem áður var fer úr skorðum. Saman við komu spákonunnar fléttast barátta kotbænda við auðvaldið úr nærliggjandi kaupstað, hrifnæmni fjósastráks, forboðnar ástir heimasætu og förukona sem enginn veit hvort er að koma eða fara.

Fyrsta skáldsaga Esterar Hilmarsdóttur, sem hlaut tilnefningu til Fjöruverðlaunanna fyrir ljóðabók sína Fegurðin í flæðinu.

Skoða bókina
SpennusagaFlóttinn gegnum Finnland

Colin Forbes

Smari Gunn les · 15 klst 8 mín

Síðustu skilaboðin sem Bob Newman fékk frá eiginkonu sinni áður en hún var myrt voru að stöðva yrði Adam Procane. En það veit enginn hver Procane raunverulega er. Þriðja bókin um Tweed og teymið hans hjá bresku leyniþjónustunni. Kristján Björnsson þýddi.

Skoða bókina →
BarnabókSkýrsla X - Mótorhjólagengið

Peter Grønlund

Jón Gunnar V. Ingólfsson les · 1 klst 12 mín

Í stað þess að spila FIFA ákveða vinirnir Andrés og Kalli að sökkva sér í gamalt mál úr málmkassanum hans Madsen rannsóknarlögreglumanns: morðið á meðlim mótorhjólagengisins Crazy Devils. Fyrsta bókin í seríunni Skýrsla X.

Skoða bókina →
Sönn sakamálSyni Charles Lindbergh var rænt!

Ýmsir

Hjálmar Hjálmarsson les · 1 klst 17 mín

Ránið og morðið á tæplega tveggja ára syni Charles Lindbergh árið 1932 hefur oft verið kallað afbrot 20. aldarinnar. Úr bókaflokknum Norræn sakamál.

Skoða bókina →
Sönn sakamálVísindamaðurinn

Ýmsir

Hjálmar Hjálmarsson les · 17 mín

Íslenskur lögreglumaður segir frá tveimur málum frá árunum 2005 og 2006 sem vöktu óhug þrautreyndra lögreglumanna. Úr bókaflokknum Norræn sakamál.

Skoða bókina →

Byrjaðu á nýrri bók í dag