Heim › ...
Halló mín fagra eftir Ann Napolitano - hljóðbók

Halló mín fagra

Höfundur: Ann Napolitano

Flytjandi: Íris Tanja Flygenring

Þýðandi: Ingunn Snædal

14 klst 44 mín
Sögur útgáfa

Þættir um bókina

3 þættir

Um bókina

Getur ástin gert brotna manneskju heila?

William Waters ólst upp á heimili sem harmleikur hafði breitt þögn yfir. Foreldrar hans gátu varla fengið sig til að líta á hann, hvað þá elska hann. Þegar hann kynnist hinni lífsglöðu og metnaðarfullu Juliu Padavano á fyrsta ári í háskóla er því eins og skyndilega birti til í kringum hann. Juliu fylgir gjörvöll fjölskylda hennar, enda eru hún og systur hennar þrjár óaðskiljanlegar. Hjá Padavano-fjölskyldunni kynnist William áður óþekktri lífsfyllingu; hvert augnablik á heimili þeirra einkennist af hlýju, ást og yndislegri óreiðu.

En þá skýtur myrkrið úr fortíð Williams aftur upp kollinum. Það ógnar ekki aðeins vandlega mótuðum framtíðaráformum Juliu heldur einnig þeirri órjúfanlegu tryggð sem bundið hefur systurnar saman. Afleiðingin er skelfilegur klofningur í fjölskyldunni sem markar líf hennar kynslóðum saman.

Halló, mín fagra er afar áhrifamikil saga um það sem getur gerst þegar við veljum að elska manneskju, ekki þrátt fyrir það hver hún er, heldur einmitt vegna þess.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán