Heim › ...
Skýrsla X – Mótorhjólagengið eftir Peter Grønlund - hljóðbók

Skýrsla X – Mótorhjólagengið

Höfundur: Peter Grønlund

Flytjandi: Jón Gunnar V. Ingólfsson

Þýðandi: HMH

1 klst 12 mín
Saga Egmont
Bók 1 af 8 í Skýrsla X

Um bókina

Mótorhjólagengið segir frá því þegar Andrés og Kalli sökkva sér í gamalt mál og hefja rannsókn á morðinu á Nikki Hansen, sem var meðlimur í mótorhjólagenginu Crazy Devils. Málið dregur vinina tvo inn í myrkan heim mótorhjólagengisins og þeir þurfa að komast að því hver lýgur og hver er að segja satt.

Skýrsla X

Í öskunni í brenndu húsi rannsóknarlögreglumannsins Madsen finnur Andrés gamlan málmkassa. Þar er að finna fullt af gömlum skýrslum. Þetta eru óleyst mál sem Madsen hefur kannað en nú er hann dáinn.

Sögurnar í „Skýrsla X“ fjalla um Andrés og Kalla vin hans, sem ákveða að taka nokkrar skýrslurnar í sínar eigin hendur og reyna að rannsaka og leysa gömlu sakamálin.

Peter Grønlund (f. 1970) er höfundur nokkurra þekktra og vinsælla bóka sem fjalla um undirmenningar og skuggahliðar í dönsku samfélagi. Hann hefur meðal annars gefið út bækur um veggjakrot í Danmörku, ríkisfangelsið í Vridsløselille og ævisögu glæpamannsins Lonne.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán