Heim › ...
Umrót eftir Tove Alsterdal - hljóðbók

Umrót

Höfundur: Tove Alsterdal

Flytjandi: Birgitta Birgisdóttir

Þýðandi: Malín Brand

12 klst 22 mín
Lind & Co
Bók 1 af 3 í Ådalen

Um bókina

Ólafur var aðeins fjórtán ára þegar hann játaði á sig morðið á unglingsstúlkunni, Línu Stavred. Hann var í kjölfarið tekinn af heimili sínu og fjölskyldan sleit alfarið sambandinu við hann. Tuttugu og þremur árum síðar beygir hann út af hraðbrautinni við Ångermanland og ekur eftir sveitavegum þar til hann kemur að æskuheimilinu.

Í sturtunni finnur hann föður sinn sem hefur verið myrtur með veiðihníf.

Lögregluþjónninn Eira Sjödin er nýkomin til starfa á stöðinni í Kramfors, æskuslóðum hennar sjálfrar en þar býr móðir hennar sem þarfnast umönnunar vegna minnisglapa. Við rannsóknina á morðinu á föður Ólafs byrjar Eira að skilja ýmislegt í eigin lífi. Eira var níu ára gömul þegar Lína var myrt. Ólafur var drengurinn sem birtist í martröðum hennar.

„Áköf og grípandi norræn rökkursaga“ LILJA SIGURÐARDÓTTIR „Stórgóður og snúinn spennurússíbani“ PETER JAMES „Ákaflega grípandi“ CHRIS WHITAKER

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán