
Um bókina
Sjálfstætt framhald metsölubókarinnar Umrót, sem valin var besta sænska glæpasagan árið 2020 og hlaut Glerlykilinn 2021, verðlaun norrænu glæpasagnafélaganna fyrir besta norræna krimma ársins.
Í eyðibýli við Offersjön, lengst inni í þéttum skógum Ångermanlands, finnst lík hungurmorða manns. Tveir fingur vinstri handar hans hafa verið höggnir af.
700 kílómetrum norðar, í hinum hálfyfirgefna námubæ Malmberget, hefur annar maður verið lokaður inni í kjallara og skilinn eftir til þess að deyja.
Eira Sjödin, lögregluþjónn í Kramfors, blandast inn í rannsóknina og einmitt á sama tíma þarf móðir hennar að fara á hjúkrunarheimili. Bróðir hennar situr inni vegna morðs sem hann hefur játað á sig en framdi ekki.
Þegar enn einn maður hverfur, snertir það Eiru persónulega. Til að finna hann er hún reiðubúin að leggja allt í sölurnar.
„Áköf og grípandi norræn rökkursaga“ LILJA SIGURÐARDÓTTIR „Stórgóður og snúinn spennurússíbani“ PETER JAMES „Ákaflega grípandi“ CHRIS WHITAKER
Ådalen
Bók 2 af 3
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app


