Heim › ...

Um bókina
Farandsölumaður finnst myrtur í lítilli leiguíbúð í Reykjavík, skotinn í höfuðið með skammbyssu. Sjónir lögreglunnar beinast strax að erlendu hermönnunum sem er á hverju götuhorni sumarið 1941, en samskipti þeirra við heimafólk, ekki síst konur, eru mörgum þyrnir í augum.
Í verðlaunabókinni Skuggasundi, sem kom út 2013, voru þeir Flóvent og Thorson kynntir til leiks, samstarfsmenn við lögreglustörf í Reykjavík á árum síðari heimsstyrjaldar. Hér segir frá þeirra fyrsta máli - vestur-íslenski hermaðurinn Thorson er viðvaningur í glæparannsóknum en Flóvent reyndari, eini maðurinn sem sinnir starfi rannsóknarlögreglu í borginni.
Flóvent og Þorson
Bók 2 af 3
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app


