
Um bókina
Einstæðingur finnst látinn í íbúð sinni í Reykjavík. Á skrifborði hans liggja blaðaúrklippur frá stríðsárunum þar sem sagt er frá óhugnanlegu morði: stúlka fannst kyrkt bak við Þjóðleikhúsið sem var á þeim tíma birgðastöð fyrir herinn. Lögreglumaður kominn á eftirlaun fréttir af málinu og forvitni hans vaknar. Hann hefur áður heyrt um stúlkuna – en hvers vegna skyldi nokkur maður geyma fregnir af dauða hennar? Skuggasund er sautjánda bók Arnaldar Indriðasonar.
Hér fetar hann ótroðnar slóðir í fylgd nýrra sögupersóna; annars vegar í samtímanum og hins vegar á árum síðari heimsstyrjaldar. Arnaldur hefur um langt skeið notið gríðarlegrar hylli lesenda og gagnrýnenda heima og erlendis. Bækur hans hafa verið þýddar á tugi tungumála, selst í milljónum eintaka og aflað höfundinum verðlauna og virðingar víða um lönd. Skuggasund hefur nú þegar hlotið virt alþjóðleg bókmenntaverðlaun: hin spænsku Premio RBA de Novela Negra 2013 sem veitt eru fyrir óútgefna glæpasögu og var sagan valin úr hátt í tvö hundruð handritum frá ýmsum löndum.
Bókin kemur samtímis út á spænsku og íslensku.
Flóvent og Þorson
Bók 1 af 3
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app


