Heim › ...
Þegar pabbi kemur heim eftir Toni Maguire - hljóðbók

Þegar pabbi kemur heim

Höfundur: Toni Maguire

Flytjandi: Unnur Birna Backman

Þýðandi: Gunnar Tryggvason

9 klst 22 mín
Lind & Co
Bók 2 af 2 í Toni Maguire

Um bókina

Toni Maguire, höfundur metsölubókarinnar „Ekki segja mömmu“, heldur áfram frásögninni um sorglega æsku sína þar sem frá var horfið og opinberar skelfilegan sannleikann um hvað gerðist þegar pabbi hennar, sem hafði verið dæmdur í fangelsi fyrir að misnota hana, var látinn laus og sneri aftur heim …Pabbi Maguire misnotaði hana frá sex ára aldri og það komst ekki upp fyrr en hún varð ólétt og missti barnið eftir erfiða fóstureyðingu. Vitnisburður hennar varð til þess að hann var dæmdur í fangelsi og taldi Antoinette sig loksins örugga en það átti ekki eftir að vara lengi …Þegar hún var send að sækja pabba sinn ein síns liðs á lestarstöðina markaði það nýjan botn í lífi ungu Antoinette.

Hún áttaði sig á því að hún væri ekki lengur örugg heima hjá sér og neyddist til að fara að heiman. Mamma hennar gerði ekkert til að vernda hana eða koma í veg fyrir að hún færi.Illa farin og einmana, átti Antoinette erfitt með að spjara sig og var lögð inn á geðsjúkrahús, þar sem vonleysi hennar jókst með hverjum degi. Að lokum var hún flutt á lokaða deild með litla von um bata en smám saman náði hún sér á strik með óbugandi þrautseigju.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán