
Um bókina
Toni var aðeins sex ára gömul þegar pabbi hennar hagaði sér fyrst óviðeigandi gagnvart henni. Hann varaði hana við því að segja mömmu sinni frá, né nokkrum öðrum, því þá myndu þau kenna henni um og hætta að elska hana.
Þetta yrði að vera „leyndarmálið þeirra“.Þegar hún þorði loksins að segja mömmu sinni frá, var henni skipað að minnast aldrei á þetta framar. Alein og einangruð í sveit á Írlandi, hélt misnotkunin áfram án þess að nokkuð væri aðhafst.Fjórtán ára gömul varð Toni ólétt eftir pabba sinn og þegar ástand hennar uppgötvaðist seint á meðgöngunni var hún neydd í fóstureyðingu sem kostaði hana næstum lífið.
Það var ekki lengur hægt að leyna sannleikanum um æsku Toni, og rétt eins og faðir hennar hafði spáð, mætti hún nú tortryggni og höfnun frá fjölskyldu sinni, kennurum og vinum. Ásakanirnar og reiðin gagnvart henni jukust enn frekar þegar faðir hennar var sendur í fangelsi fyrir gjörðir sínar.
Þetta er áhrifamikil saga um konu og uppgjör hennar við drauga fortíðarinnar, þar sem hún stendur að lokum uppi sem sigurvegari.
Toni Maguire
Bók 1 af 2
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app

