
Um bókina
Tove hefur starfað hjá sama forlaginu í sautján ár og unnið sig upp í stöðu útgáfustjóra. Þegar nýir eigendur taka óvænt við fyrirtækinu breytist allt. Í hita augnabliksins segir hún upp – og skyndilega er tilveran komin úr skorðum. Sonurinn er fluttur að heiman, sorgin eftir andlát móður hennar er enn sár og í fyrsta sinn í langan tíma veit Tove ekki hvað framtíðin ber í skauti sér. Hún leitar skjóls í gömlu húsi móður sinnar í í sænska skerjagarðinum við Arkösund, þar sem hún reynir að finna aftur fótfestu.
Á háalofti hússins bíður hennar óvænt uppgötvun: gömul dagbók sem tilheyrði Märtu frænku hennar. Dagbókarfærslurnar leiða Tove aftur í tímann, til Ameríku í upphafi síðustu aldar, þar sem hörmulegur bruni markaði upphaf dularfullrar atburðarásar.
Eftir því sem Tove kemst nær sannleikanum um örlög Märtu breytist sýn hennar á eigið líf. Hrífandi skáldsaga um fjölskylduleyndarmál, missi og von – og hugrekkið sem þarf til að þora að velja nýja leið. Urður Snædal íslenskaði. „Hlý, áhrifamikil og grípandi. Ógleymanleg lestrarupplifun.“ Cassandra Brunstedt „Dásamlegur ljúflestur í anda Lucindu Riley.“ Nordin
Skerjagarðs-serían
Bók 3 af 3
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app


