Heim › ...

Þar sem villtu blómin vaxa
11 klst 23 mín
Sögur útgáfa
Um bókina
Maya Björk virðist hafa allt sem nokkur gæti óskað sér – mikilvæga stöðu í farsælu sprotafyrirtæki, unnusta sem hún hefur elskað síðan á námsárunum og líf í miðbæ Stokkhólms sem flestir gætu bara látið sig dreyma um.
En á einu sekúndubroti er þetta allt tekið frá henni.
Þegar Maya heldur að líf hennar sé komið í þrot hafnar hún í litla, sænska skerjagarðsbænum Arkösund þar sem hún reynir að finna lífinu nýjan farveg.
Þar sem villtu blómin vaxa er saga um að týna sjálfum sér og finna sig svo á alveg óvæntum stað. Um það sem getur gerst þegar við neyðumst til að sleppa takinu á öllu því sem við höldum að við viljum og eigi að vera, og lærum í staðinn að skilja hvað skiptir í raun og veru máli.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app