Heim › ...

Um bókina

Tove hefur starfað hjá sama forlaginu í sautján ár og unnið sig upp í stöðu útgáfustjóra. Þegar nýir eigendur taka óvænt við fyrirtækinu breytist allt. Í hita augnabliksins ­segir hún upp – og skyndilega er tilveran komin úr skorðum. Sonurinn er fluttur að heiman, sorgin eftir andlát móður ­hennar er enn sár og í fyrsta sinn í langan tíma veit Tove ekki hvað framtíðin ber í skauti sér. Hún leitar skjóls í gömlu húsi móður sinnar í í sænska skerjagarðinum við Arkösund, þar sem hún reynir að finna aftur fótfestu.

Á háalofti hússins bíður hennar óvænt uppgötvun: gömul dag­bók sem tilheyrði Märtu frænku hennar. ­Dagbókarfærslurnar leiða Tove aftur í tímann, til Ameríku í upphafi síðustu aldar, þar sem hörmulegur bruni markaði upphaf dularfullrar ­atburðarásar.

Eftir því sem Tove kemst nær sannleikanum um örlög Märtu breytist sýn hennar á eigið líf. Hrífandi skáldsaga um fjölskylduleyndarmál, missi og von – og hugrekkið sem þarf til að þora að velja nýja leið. Urður Snædal íslenskaði. „Hlý, áhrifamikil og grípandi. Ógleymanleg lestrarupplifun.“ Cassandra Brunstedt „Dásamlegur ljúflestur í anda Lucindu Riley.“ Nordin

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán