Heim › ...
Sumar í Litla bakaríinu við Strandgötu eftir Jenny Colgan - hljóðbók

Sumar í Litla bakaríinu við Strandgötu

Höfundur: Jenny Colgan

Flytjandi: Esther Talía Casey

Þýðandi: Ingunn Snædal

10 klst 57 mín
Angústúra
Bók 3 af 3 í Litla bakaríið

Um bókina

Polly Waterford býr í vita í smábænum Mount Polbearne á Suðvestur-Englandi ásamt unnusta sínum, myndarlega hunangsbóndanum Huckle, og lundanum Neil. Hún gæti ekki verið hamingjusamari: ástfangin upp fyrir haus og í draumastarfinu í Litla bakaríinu við sjávarsíðuna þar sem hún nýtur þess að baka dýrindis brauð og kökur ofan í heimafólk og ferðamenn.

En þegar eigendur bakarísins heimta meiri hagnað á kostnað gæða og Huckle ílendist í verkefni vestanhafs, þarf Polly að taka til sinna ráða og hugsa líf sitt upp á nýtt. Jafnframt eru hættur hafsins aldrei fjarri í þessu litla fiskimannaþorpi, eins og Polly fær að reyna á eigin skinni með eftirminnilegum hætti.

Sjálfstætt framhald Litla bakarísins við Strandgötu sem sat á metsölulistum á Íslandi mánuðum saman.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán