Heim › ...
Litla bakaríið við Strandgötu eftir Jenny Colgan - hljóðbók

Litla bakaríið við Strandgötu

Höfundur: Jenny Colgan

Flytjandi: Esther Talía Casey

Þýðandi: Ingunn Snædal

11 klst 33 mín
Angústúra
Bók 2 af 3 í Litla bakaríið

Um bókina

Líf Pollyar Waterford er heldur dapurlegt: Fyrirtækið er gjaldþrota, fína íbúðin horfin undir hamarinn og kærastinn fluttur heim til mömmu. Sárblönk neyðist Polly til að flytja í hrörlegt hús í litlu sjávarþorpi í Cornwall þar sem hún þekkir ekki nokkurn mann. Til að gleyma sorgum sínum hellir hún sér út í það sem veitir henni mesta ánægju í lífinu: að baka brauð. Fljótlega rennur þorpið á lyktina og fyrr en varir hefur Polly tekið við rekstri bakarísins á staðnum.

Hér kynnist hún litríkum þorpsbúunum: sjómanninum Tarnie og skipsfélögum hans, myndarlega bandaríska býflugnabóndanum Huckle og ríka, skrautlega vini hans Reuben, skapilla bakaríseigandanum Gill Manse og hinum óframfærna Jayden, svo ekki sé minnst á Kerensu, kjaftforu og hressu vinkonuna úr borginni. Hugljúf og heillandi saga um konu sem þorir að hefja nýtt líf. Fyrsta bókin í þríleik.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán