Heim › ...
Söngur Súlu 3: Í faðmi fjallsins eftir Hrafnhildur Valgarðsdóttir - hljóðbók

Söngur Súlu 3: Í faðmi fjallsins

7 klst 20 mín
Krass ehf
Bók 3 af 3 í Söngur Súlu

Um bókina

Það er komið að tímamótum hjá Súlu. Hún er ófrísk og í 'húsi bóka' er ekkert pláss fyrir barn. Eftir erfiðar uppákomur í vinnunni ákveður hún að flytja vestur, í hús ömmu sinnar sem stendur autt en er – kannski fokið burt í rokinu fyrir vestan. Hún þarf að hugsa hlutina upp á nýtt í nýjum veruleika ein og óstudd sem fullorðin kona og bráðum móðir. Hún sest að í afskekktu, fámennu sjávarþorpi þar sem lítið er um atvinnu og Fjallið hamrar öllum samgöngum. Draumurinn um að gerast rithöfundur blundar stöðugt í henni og henni tekst að mjaka honum áfram í rétta átt.

Margt verður henni til bjargar, skrautlegar en hjálpsamar persónur leynast í daufu mannlífinu og smám saman verður lífið henni bærilegt. Fjallið leikur stórt hlutverk í lífi íbúanna en þótt það sé mannfólkinu oft mikil hindrun veitir það líka skjól og umfaðmar bæði dýr og menn.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán