
Söngur Súlu
Höfundur: Hrafnhildur Valgarðsdóttir
Flytjandi: Hrafnhildur Valgarðsdóttir
Um bókina
Skáldsagan Söngur Súlu gerist á árunum 1944-1960 í Reykjavík. Fjölskyldur flykkjast til höfuðborgarinnar í leit að nýju lífi. Þar er nóga vinnu að fá og peningar flæða inn í landið en að sama skapi fæst fátt fyrir þá vegna vöruskorts og skorts á húsnæði. Fólk býr sér heimili á ólíklegustu stöðum, meðal annars í gluggalausum geymslum og bröggum sem Bretar skildu eftir sig hér á landi. Sagan segir frá þeim Helga og Hafdísi Lilju, ungu fólki af landsbyggðinni sem leitaði að ævintýrinu í Reykjavík. Þau keyptu sér hálfan bragga og byrjuðu búskap.
Þar upplifðu þau miklar raunir sem skópu þeim hörmuleg örlög. En lífið hélt áfram og fylgst er með einu barna þeirra, Súlu, sem síðan leiðir söguna. Hún flækist milli heimila og kynnist mörgu. Ný millistétt hefur litið dagsins ljós, konur eru kallaðar frúr og menn ganga um með hatta, hin nýja stétt er stolt og velmegandi. Reykjavíkurborg er að fæðast.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app


