
Um bókina
Electra er yngst systranna sem dularfulli auðkýfingurinn, Pa Salt, ættleiðir. Hún er ódæll unglingur, hættir í skóla, en er uppgötvuð á götum Parísar og verður heimsfræg ofurfyrirsæta.
Einkalífið er ekki happadrjúgt, hún ánetjast áfengi og eiturlyfjum. Electra hefur engan áhuga á uppruna sínum, eins og systur hennar hafa haft. En eitt bréf umbyltir öllu.
Sólarsystirin er sjötta bókin í þessum vinsæla bókaflokki Lucindu Riley um systurnar sjö. Væntanlegar eru Týnda systirin og Atlas – sagan af Pa Salt.
Sólarsystirin er sjötta bókin í bókaflokknum sem nefndur er eftir fyrstu bókinni, Sjö systur. Söguþráðurinn byggir lauslega á goðsögnum um stjörnuþyrpinguna Sjöstirnið. Bækurnar um systurnar sjö eru einhverjar vinsælustu skáldsögur í heimi. Einnig hefur komið út á íslensku sjálfstæð skáldsaga eftir Lucindu Riley: Miðnæturrósin.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app







