Heim › ...
Mánasystirin eftir Lucinda Riley - hljóðbók

Mánasystirin

22 klst 14 mín
Benedikt bókaútgáfa
Bók 5 af 8 í Systurnar sjö

Um bókina

Eftir dauða Pa Salt, milljarðamæringsins sem ættleiddi sex dætur allsstaðar að úr heiminum, lætur ein þeirra, Tiggy D’Aplièse, innsæið ráða og flytur á afskekktan stað í skosku hálöndunum til að hugsa um villt dýr á landareign héraðshöfðingjans fjallmyndarlega Charlie Kinnaird sem er í óhamingjusömu hjónabandi og á í baráttu um landareignina.

Þessi ákvörðun breytir lífi hennar því þar hittir hún Chilly, gamlan Róma-mann sem segir henni að hún hafi ekki bara sjötta skilningarvitið og sé græðari af Guðs náð, heldur líka að því hafi verið spáð fyrir löngu að þau ættu eftir að hittast og hann myndi senda hana heim til fæðingarstaðar síns við Granada á Spáni.

Tiggy uppgötvar tengsl sín við hið sögufræga Róma-samfélag í hellum Sacromonte og að hún á ættir að rekja til “La Candela”, sögufrægasta flamenkódansara sinnar kynslóðar.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán