Um bókina

Allir vita að bestu leyndarmálin eru geymd í leynifélögum. Þess vegna stofna Pétur og Stefanía Skrímslavinafélagið. Þegar þau finna dularfullt og hættulegt svart duft í skólanum sínum fara leikar að æsast.

Tómas Zoëga og Sólrún Ylfa Ingimarsdóttir unnu samkeppni Borgarbókasafnsins og Bókmenntaborgarinnar um jóladagatal ársins 2020 með sögunni Nornin í eldhúsinu. Nú hafa þau skrifað aðra fyndna og fjöruga sögu, Skrímslavinafélagið, sem á örugglega eftir að kitla hláturtaugar lesenda á aldrinum 6–10 ára.

Skrímslavinafélagið er tilnefnd til Barna- og unglingabókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs og tilnefnd til Barnabókaverðlauna Reykjavíkur!

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 1.990 kr