Heim › ...
Náhvít jörð eftir Lilja Sigurðardóttir - hljóðbók

Náhvít jörð

7 klst 33 mín
JPV
Bók 3 af 5 í Áróra

Um bókina

Náhvít jörð er hrollvekjandi saga um glæpamenn sem svífast einskis og fórnarlömb mansals – þræla nútímans. Áður eru komnar út tvær vinsælar bækur um sömu persónur, Helköld sól og Blóðrauður sjór. Á hvítum vetrarmorgni finnst yfirgefinn flutningagámur í Rauðhólum við Reykjavík. Þegar hann er opnaður blasir hryllingurinn við: fimm lífvana konur sem augljóslega hafa verið fluttar í þessum gámi yfir hafið. Hvernig getur svona lagað gerst og hverjir standa að baki þessari óhæfu?

Rannsóknarlögreglumennirnir Daníel og Helena mæta á vettvang og hefjast handa en á meðan sinnir Áróra, vinkona Daníels, öðru máli: Elín frænka hennar er í sambandi við rússneskan mann sem vill endilega að þau gifti sig en virðist hafa óhreint mjöl í pokahorninu … Lilja Sigurðardóttir er einn vinsælasti spennusagnahöfundur landsins og bækur hennar hafa komið út víða erlendis. Hún hefur verið tilnefnd til breska Gullrýtingsins og í tvígang hlotið íslenska Blóðdropann og tilnefningu til norræna Glerlykilsins.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 3.990 kr