
Blóðrauður sjór
Höfundur: Lilja Sigurðardóttir
Flytjandi: Elín Gunnarsdóttir
Um bókina
Þegar athafnamaðurinn Flosi kemur heim í kvöldmat er allt á rúi og stúi en Guðrún kona hans horfin. Á eldhúsborðinu bíður bréf um að henni hafi verið rænt og ef Flosi greiði ekki himinhátt lausnargjald verði hún drepin. Hann má ekki leita til lögreglunnar en eftir krókaleiðum kemst hann í samband við Áróru, sem vinnur við að finna falið fé, og Daníel rannsóknarlögreglumann. Án þess að nokkuð spyrjist út reyna þau í sameiningu að átta sig á hvað hefur gerst. Getur verið að ránið á Guðrúnu tengist alþjóðlegri glæpastarfsemi og peningaþvætti – eða er skýringin ef til vill mun nærtækari?
Blóðrauður sjór er hröð og hörkugóð glæpasaga með óvæntum vendingum, sjálfstætt framhald sögunnar Helköld sól þar sem Áróra og Daníel voru líka í aðalhlutverki – og spennan milli þeirra tveggja fer síst minnkandi. Lilja Sigurðardóttir hefur skrifað skáldsögur, leikrit og sjónvarpsþáttahandrit. Glæpasögur hennar hafa notið mikilla vinsælda og verið verðlaunaðar heima og erlendis; Gildran var tilnefnd til breska Gullrýtingsins og fyrir Búrið og Svik hlaut hún Blóðdropann og tilnefningu til norræna Glerlykilsins tvö ár í röð.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
- Eða kauptu á 3.990 kr
Sækja app




