Heim › ...

Um bókina
Á vætusömum vordegi finnst kona myrt í Norrköping eftir að hafa verið saknað í tvo sólarhringa. Líkið finnst á floti í ánni sem rennur í gegnum borgina. Tveimur dögum áður fannst annað lík í ánni, önnur kona myrt á sama hátt.
Þegar þriðja konan hverfur óttast lögreglan að raðmorðingi sé kominn á kreik. Jana Berzelius saksóknari fær málið í hendur, dyggilega studd af rannsóknarlögreglumönnunum Henrik Levin og Miu Bolander. Fljótt tengist rannsókn þeirra eldra máli ungs manns sem er vistaður á réttargeðdeild eftir að hafa myrt fjölskyldu sína.
Á þeirri sömu deild dvelur líka Danilo Peña – maðurinn sem Jana Berzelius vill losna við úr lífi sínu – hvað sem það kostar.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app







