Heim › ...

Um bókina

Maður finnst myrtur á hrottalegan hátt á heimili sínu á afskekktum stað í nágrenni Norrköping. Í illa leiknu líkinu finnst bangsi og tuskudýrið leiðir Henrik Levin og Miu Bolander rannsóknarlögreglumenn til Filippu Falk sem starfaði áður hjá lögreglunni. Hún fer huldu höfði eftir harmleik í fjölskyldunni og virðist ein búa yfir upplýsingum sem gætu leitt til lausnar málsins. Jana Berzelius saksóknari tekur þátt í rannsókninni. Maðurinn sem hún elskar hefur grun um að hún eigi sér myrka fortíð og hefur einsett sér að komast að því hver hún er – hvað sem það kostar.

Morðrannsóknin tekur óvænta stefnu á sama tíma og Jönu gengur stöðugt verr að hylja slóð sína.BJÖRNINN SEFUR er sjöunda bókin um Jönu Berzelius. Emelie Schepp var valin glæpasagnahöfundur Svíþjóðar þrjú ár í röð.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán