Heim › ...
Maestra eftir L.S. Hilton - hljóðbók

Maestra

Höfundur: L.S. Hilton

Flytjandi: Vera Kristinsdóttir

12 klst 0 mín
SAGA Egmont
Bók 1 af 3 í Maestra trílógían

Um bókina

Judith Rashleigh vinnur á daginn á virðulegu uppboðshúsi í London en á kvöldin á vafasömum bar til að ná endum saman. Þegar hún áttar sig á samsæri í dagvinnunni missir hún starfið áður en hún getur komið upp um svikin.

Í örvæntingu sinni þiggur hún boð til Frönsku rívíerunnar, sem endar með ósköpum. Alein og í lífshættu þarf Judith að treysta á hæfileika sína til að passa inn í á meðal efnuðu elítunnar á meðan hún reynir að koma upp um listaverkasvindlið sem kostaði hana starfið.Þetta er fyrsta skáldsagan í seríu sem heldur lesendum í heljargreipum. Bókin hrífur þig með sér í æsispennandi ferðalag um sögusviðið meðal hinnar ríku og frægu í Suður-Evrópu með aðalpersónu sem er eins skörp og Amy Dunne og eins hættuleg og Lisbeth Salander.Maestra TrílógíanMaestra-trílógían er röð erótískra spennusagna eftir L.S.

Hilton, sem er höfundarnafn Lisu Hilton. Serían samanstendur af bókunum Maestra (2016), Domina (2017) og Ultima (2018). í bókunum segir frá Judith Rashleigh sem starfar við uppboðshús í London, en missir vinnuna í kjölfar samsæris sem sendir hana á flótta í heim glæsimennsku, glæpa og blekkinga.Serían hefur selst í yfir milljón eintökum um allan heim og í vinnslu er kvikmynd sem byggir á henni.L.S. Hilton er höfundarnafn Lisu Hilton, sem er breskur sagnfræðingur, blaðamaður og metsöluhöfundur.

Fyrir utan Maestra-trílógíuna, hefur hún skrifað fjölda sögulegra skáldsagna og ævisagna um sögulegar persónur. Megin innblástur hennar kemur frá áhrifamiklum konum í gegnum mannkynssöguna. Lisa Hilton hefur starfað sem sjónvarpskynnir, skrifað fjöldann allan af handritum fyrir sjónvarp sem og greinar í ýmis blöð og tímarit. Hún skrifar á ítölsku, frönsku og ensku, hefur m.a. ritað greinar í tímaritin Vanity Fair, Elle og Times og hefur unnið til nokkurra verðlauna fyrir greinaskrif sín. Lisa ólst upp í Norður-Englandi, en hefur búið víða, meðal annars Flórens, París, New York, Mílanó og London.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán