
Domina
Höfundur: L.S. Hilton
Flytjandi: Vera Kristinsdóttir
Væntanleg
Kemur út 1. maí 2026
Um bókina
Judith Rashleigh lifir nú við velsældir í Feneyjum. Þetta er lífið sem hún var tilbúin til að drepa fyrir. En einhver veit hvað hún hefur gert.Eina leiðin til að bjarga sér er að finna ómetanlegt málverk - gallinn er sá að hún er ekki viss hvort það sé til. Og hún er ekki sú eina sem leitar að því.í þetta skipti er Judith ekki við stjórnvölinn. Hún er gjörsamlega yfirbuguð af óvini sem er miskunnarlausari og valdameiri en hana hefði nokkurn tíma grunað. Og ef hún hefur ekki yfirhöndina, á hún á hættu að tapa lífinu.Maestra TrílógíanMaestra-trílógían er röð erótískra spennusagna eftir L.S.
Hilton, sem er höfundarnafn Lisu Hilton. Serían samanstendur af bókunum Maestra (2016), Domina (2017) og Ultima (2018). í bókunum segir frá Judith Rashleigh sem starfar við uppboðshús í London, en missir vinnuna í kjölfar samsæris sem sendir hana á flótta í heim glæsimennsku, glæpa og blekkinga.Serían hefur selst í yfir milljón eintökum um allan heim og í vinnslu er kvikmynd sem byggir á henni.L.S. Hilton er höfundarnafn Lisu Hilton, sem er breskur sagnfræðingur, blaðamaður og metsöluhöfundur.
Fyrir utan Maestra-trílógíuna, hefur hún skrifað fjölda sögulegra skáldsagna og ævisagna um sögulegar persónur. Megin innblástur hennar kemur frá áhrifamiklum konum í gegnum mannkynssöguna. Lisa Hilton hefur starfað sem sjónvarpskynnir, skrifað fjöldann allan af handritum fyrir sjónvarp sem og greinar í ýmis blöð og tímarit. Hún skrifar á ítölsku, frönsku og ensku, hefur m.a. ritað greinar í tímaritin Vanity Fair, Elle og Times og hefur unnið til nokkurra verðlauna fyrir greinaskrif sín. Lisa ólst upp í Norður-Englandi, en hefur búið víða, meðal annars Flórens, París, New York, Mílanó og London.
Maestra trílógían
Bók 2 af 3
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app


