Heim › ...
Listasafnið eftir Sigrún Eldjárn - hljóðbók

Listasafnið

3 klst 2 mín
Mál og menning
Bók 3 af 3 í Safnasagan

Um bókina

Uppsetning Forngripasafnsins og Náttúrugripasafnsins heppnaðist vel. Nú er bara efsta hæðin eftir og þar á Listasafnið að vera. En uppi er allt í drasli og fátt til að sýna annað en ómerkileg málverk og ljótar styttur.

Pabbi Rúnars fær tilboð um vinnu í útlöndum og biður því mömmu hans að koma frá New York og ljúka verkinu. Til þess fær hún aðstoð úr ýmsum áttum – frá óvenjulegum vinum nær og fjær, krökkunum í Ásgarði og dularfullum fyrirbærum náttúrunnar.

Listasafnið er er sjálfstætt framhald Forngripasafnsins og Náttúrugripasafnsins eftir Sigrúnu Eldjárn, hér í stórskemmtilegum lestri Kristins Óla (Króla) Haraldssonar. Tilvalin hlustun fyrir krakka á aldrinum 8–12 ára!

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 1.490 kr