Heim › ...
Kuðungakrabbarnir eftir Anne B. Ragde - hljóðbók

Kuðungakrabbarnir

9 klst 51 mín
Mál og menning
Bók 2 af 6 í Berlinarsagan

Um bókina

Önnur bókin í hinni vinsælu Neshov-seríu, í frábærum lestri Margrétar Örnólfsdóttur.

Torunn hitti föðurfólkið sitt í fyrsta sinn þegar amma hennar liggur fyrir dauðanum, amman sem hrakti móður hennar ófríska á brott og svipti Torunni þar með kynnum af fjölskyldunni – þar til nú. Áður en Torunn veit af hefur hún bundist þessu bláókunnunga, sérkennilega fólki og örlögum þess miklu sterkari böndum en hún kærir sig um. Og ættaróðalið og leyndardómar þess öðlast sérstakan sess í hjarta hennar.

Kuðungakrabbarnir er sjálfstætt framhald bókarinnar Berlínaraspirnar.

Anne B. Ragde er vinsælasti höfundur Norðmanna um þessar mundir enda skrifar hún eftirminnilegar og sterkar sögur um samskipti fólks og samskiptaleysi, bældar tilfinningar og þjakandi leyndarmál.

Pétur Ástvaldsson þýddi.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 1.490 kr