
Um bókina
Sjötta bókin í hinni vinsælu Neshov-seríu, í frábærum lestri Margrétar Örnólfsdóttur.
Torunn hefur tekið við rekstrinum á Útfararstofu Neshovs og heldur áfram að leggja lúið býlið undir sig. Eins og til að fullkomna það verk ákveður hún að taka upp eftirnafnið Neshov en þá bresta veikburða böndin milli hennar og móður hennar. Þegar von er á fjölskyldu Erlends frá Kaupmannahöfn færir gamli vonbiðillinn Kai Roger Torunni tvo grísi handa börnunum að leika sér við, hann skilur ekki að hún hefur endanlega gefist upp á svínarækt. Eini ljósi punkturinn er afleysingapresturinn Frank sem er svo ansi myndarlegur, bæði í hempu og hjólagalla …
Með Dótturinni lýkur Anne B. Ragde sagnabálkinum ofurvinsæla um Neshov-fólkið sem hófst með Berlínaröspunum. Þetta er bók um konu sem alla ævi hefur verið á flótta en þorir loks að taka ábyrgð og standa með sjálfri sér.
Silja Aðalsteinsdóttir þýddi.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
- Eða kauptu á 1.490 kr
Sækja app





