Heim › ...
Krónprinsessan eftir Hanne-Vibeke Holst - hljóðbók

Krónprinsessan

16 klst 11 mín
Vaka-Helgafell
Bók 1 af 3 í Valdakonurnar

Um bókina

Charlotte Damgaard er tveggja barna móðir á fertugsaldri sem býr sig undir að fylgja manni sínum til starfa í Afríku – þegar síminn hringir að kvöldlagi rétt fyrir jól. Á línunni er forsætisráðherra Dana og býður henni að setjast í stól umhverfisráðherra.

Charlotte nýtur hylli sem ráðherra og brátt er farið að nefna hana krónprinsessu flokksins. En það er ekki einfalt að vera ung kona á ráðherrastóli og innan skamms fer að bresta í hjónabandinu jafnt og sálarlífinu: Umhverfisráðherrann verður að spyrja sjálfa sig til hvers sé barist, hvort hugsjónir hennar og valdið til að hrinda þeim í framkvæmd sé þess virði að öllu sé fórnað.

Krónprinsessan hlaut frábæra dóma í heimalandinu enda er hér á ferð tímabær og áleitin saga um konu á framabraut, um miskunnarleysi fjölmiðlanna og hugsjónir sem víkja fyrir hagsmunum – eða stundum öfugt.

Fyrsta bókin í þríleik Hanne-Vibeke Holst um konur og völd á 21. öldinni, í frábærum lestri Estherar Talíu Casey.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 1.490 kr