
Klara
Höfundur: Víkingur Smárason
Flytjandi: Hjálmar Hjálmarsson
Um bókina
Klara er fjórða bókin í seríunni um lögreglukonuna Dagnýju og félaga eftir Víking Smárason. Áður útkomnar í seríunni um Dagnýju: Grimmur leikur, 2020. Græðgi, 2021. Hólmsheiði, 2022. Bækurnar eru allar skrifaðar sem sjálfstæðar sögur. Höfundur mælir þó með því að bækurnar séu lesnar í þeirri röð sem þær komu út. Dagný og Hafdís sambýliskona hennar eru á leið til Spánar að hitta Klöru vinkonu sína, en þær hafa báðar verið sendar í ótímabundið leyfi eftir harkalega lífsreynslu vegna aðkomu þeirra að máli útigangsmanna á Hólmsheiði.
Spánarferðin sem átti að vera sól, sæla og góðar Gin blöndur tekur óvænta stefnu sem engin gat séð fyrir um. Hjálmar Hjálmarsson les bókina af sinni alkunnu snilld. Guðmundur F Magnússon sá um prófarkalestur. Hljóðbókin var framleidd af Kólumkilli og er útgefandi Eyjagellur ehf.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app








