
Græðgi
Höfundur: Víkingur Smárason
Flytjandi: Hjálmar Hjálmarsson
Um bókina
Græðgi er önnur bókin um lögreglukonuna Dagný og Magnús aðstoðarmann hennar, en þau hafa áður birst í bókinni "Grimmur leikur". Nú eru þau komin til Eyja þar sem einn ríkasti útgerðamaður eyjanna er fallinn frá í blóma lífsins aðeins fimmtugur að aldri. Kristín dóttir hans er einka erfingi útgerðarinnar og hefur heitið því að reka hana áfram á sama hátt og faðir hennar gerði í gegnum árin. Ekki eru allir á eitt sáttir við það og óvæntir atburðir skekja litla friðsæla samfélagið í Eyjum þegar græðgin tekur völdin.
Þetta er önnur bók Víkings, en áður hefur komið út eftir hann hjá Storytel bókin "Grimmur leikur" og er ekki óráðlegt að hlusta á þær í þeirri röð þó þetta séu sjálfstæðar sögur. Daníel Smári Víkingsson hannaði og teiknaði bókarkápuna.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app








