Heim › ...
Doktor Proktor og prumpuduftið eftir Jo Nesbø - hljóðbók

Doktor Proktor og prumpuduftið

3 klst 40 mín
JPV
Bók 1 af 5 í Doktor Proktor

Um bókina

Lísa er himinsæl þegar Búi flytur í hverfið og kynnir hana fyrir dularfullum nágranna þeirra, brjálaða prófessornum doktor Proktor. Nýjasta uppfinning hans, hið stórfenglega prumpuduft, verður til þess að þau þrjú bindast órjúfanlegum vinaböndum.

En við sögu koma líka feðgarnir fúlu Þröstur, Þrymur og herra Þráinn, eiturslangan Anna Konda og önnur DÝR SEM ÞÚ VILDIR ÓSKA AÐ VÆRU EKKI TIL auk frönsku þokkadísarinnar Júlíettu Margarín. Ærslafengin saga fyrir krakka sem hafa gaman af smáfreti. Doktor Proktor og prumpuduftið var fyrsta barnabók Jo Nesbø, eins þekktasta glæpasagnahöfundar heims. Hún sló rækilega í gegn í Noregi, hefur síðan verið kvikmynduð og bókaflokkurinn allur komið út í fjölmörgum löndum og notið gífurlegra vinsælda.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 1.490 kr