Heim › ...

Um bókina
Það er kominn desember og bráðum koma jólin.
Jósefína ætlar að skipuleggja rosalegustu Lúsíugöngu í sögu skólans. Emma er leynivinur stráks sem hatar jólin en hún neitar að gefast upp – hann skal komast í jólaskap! Amöndu finnst allt gjafastússið farið úr böndunum og stingur upp á að gefa heimatilbúnar gjafir í ár – en getur hún búið til gjafir?
Eins og þetta sé ekki nóg fá stelpurnar vinnu við að sinna dýrunum í höllinni í bænum. Það reynist upphafið að miklu ævintýri því framtíð hallarinnar er í hættu og það koma varla jól ef öll dýrin verða heimilislaus. Vinkonurnar þurfa að beita öllum brögðum sem þær kunna til að bjarga höllinni, dýrunum og jólaandanum. 24 kaflar – einn fyrir hvern dag í desember!
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
- Eða kauptu á 1.990 kr
Sækja app






