
Vetrarhörkur
Höfundur: Hildur Knútsdóttir
Flytjandi: Hildur Knútsdóttir
Um bókina
Án þess að átta sig á því hafði hún verið farin að leggja drög að nýju lífi. Og þrátt fyrir óttann um Braga hafði hún upplifað sig örugga. En það öryggi var nú fokið út í hafsauga. Þær voru komnar. Þær voru hér. Enginn veit hversu margir lifðu af geimveruárásina sem gerð var á landið. Bergljót og pabbi hennar eru enn í Vestmannaeyjum og nú hefur heyrst lífsmark frá Braga bróður hennar ofan af landi. Spurningarnar eru óteljandi: Hvað vilja geimverurnar? Er hægt að sigrast á þeim? Verður lífið einhvern tíma venjulegt á ný?
Vetrarhörkur er seinni hluti sögunnar sem Hildur Knútsdóttir hóf í Vetrarfríi, æsispennandi bók sem naut mikilla vinsælda, var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og Barnabókaverðlauna Reykjavíkur, og hlaut Fjöruverðlaunin – bókmenntaverðlaun kvenna. Hildur Knútsdóttir fékk Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2017 fyrir Vetrarhörkur.
Vetrarfrí og Vetrarhörkur
Bók 2 af 2
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
- Eða kauptu á 1.990 kr
Sækja app

