
Um bókina
Mark fer frá eiginkonu sinni til að hefja nýtt líf með Cleo eftir að þau hittast fyrir tilviljun og tilfinningarnar bera þau ofurliði. Það sem byrjaði sem ævintýri breytist skjótt í meinfyndna kómedíu. Í þeirri blekkingu að hún viti allt um elskulega þrjótinn sem hún féll fyrir fær Cleo áfall þegar hún áttar sig á að hann er kannski ekki svo elskulegur eftir allt saman.
Sagan, sem er byggð á sönnum atburðum, sýnir annað sjónarhorn á málefni samtímans, sem fólk forðast samt töluvert að ræða. Geðheilsa, skrýtnar áráttu- og þráhyggjutilhneigingar, reiði, afbrýðisemi, andlegt ofbeldi, stöku slagsmál, ofdrykkja, lystarleysi, óvelkomnar þunganir og heill haugur af blótsyrðum. Cleo heldur að vont geti ekki versnað og heldur ótrauð áfram, segir sögu sína með háðskum húmor og því viðhorfi að best sé að halda sínu striki. Nema hvað að vont getur vissulega versnað. Heilmikið. Býr hún yfir styrk til að takast á við verstu martröð hverrar konu?
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app

