
Þrá eftir frelsi - Leiðarvísir fyrir aðstandendur eftir sjálfsvíg
Um bókina
Þrá eftir frelsi er bók fyrir þá sem þurft að glíma við ólýsanlegan missi – sjálfsvíg ástvinar. Höfundar bókarinnar, Beverly Cobain og Jean Larch, brjótast í gegnum þagnarmúrinn, flóknar tilfinningar og smánarbletti með ótrúlegu hugrekki til að færa okkur þennan ljúfa og læknandi leiðarvísi fyrir fjölskyldumeðlimi sem misst hafa ástvin í sjálfsvíg. Sár og heiðarleg frásögn Cobains, samhliða ljúfum minningum frá öðrum þeim sem hafa þurft að glíma við afleiðingar sjálfsvíga, veitir innsæi inn í heim uppnáms, ótta og sektarkenndar sem fjölskyldumeðlimir í slíkum aðstæðum ganga í gegnum.
Beverly Cobain hefur þurft að takast á við þrjú sjálfsvíg í fjölskyldu sinni, þ.m.t. árið 1994 í tilfelli nákomins frænda hennar Kurt Cobains, söngvara hljómsveitarinnar Nirvana. Hún er starfandi hjúkrunarfræðingur sem sérhæfir sig í sálfræðilegri/geðrænni hjúkrun. Jean Larch, S.W.T., er sérfræðingur í áfallahjálp og starfar náið með einstaklingum í sjálfsvígshugleiðingum og fjölskyldumeðlimum sem hafa þurft að takast á við sjálfsvíg. Hún hefur þróað námskeið um hugarheim þeirra sem stríða við sjálfsvígshugleiðingar og þjálfar starfsfólk á geðheilbrigðissviði við ýmsa þætti sem varða sjálfsvíg.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app

