
Um bókina
Amanda og Erik hafa nýlega unnið sig í gegnum hjónabandserfiðleika og hafa heitið því að leggja allar lygar að baki sér og reyna aftur. Það reynist hægara sagt en gert, sérstaklega núorðið þegar þau er farin að sækjast eftir svo ólíkum hlutum í lífinu. Amanda vill til dæmis að Erik nýti sér feðraorlofið sitt en hún þráir hins vegar góðan nætursvefn og að unglingsdæturnar hætti að koma heim með óþolandi kærasta. Umfram allt dreymir hana þó um að forlag vilji taka handritið hennar upp á sína arma svo að lífið geti tekið nýja stefnu.
Erik á sér þá ósk heitasta að allt verði eins og áður, þegar lífið var auðvelt en nú finnst honum það orðið mun flóknara. Amanda hefur breyst, stöðuhækkun í vinnunni tekur óralangan tíma að ganga í gegn og svo er það þessi hjartsláttaróregla sem heldur fyrir honum vöku á nóttunni.
Þegar Amanda leggur af stað í óvænt ferðalag verður til misskilningur í hverju horni. Svo þegar nýir kunningjar og gamlir draugar skjóta upp kollinum og valda uppnámi finna Amanda og Erik sig knúin til að endurmeta allt sem þau hafa áður tekið sem sjálfsögðum hlut. Hvenær veit maður hvort það er þess virði að bíða rólegur – eða hvenær beðið er of lengi?Þolinmæði þrautir vinnur allar, er sjálfstæð framhald hinnar margrómuðu skáldsögu Kristinar Emilsson, Haltu mér slepptu mér.KRISTIN EMILSSON fæddst árið 1973 í Stokkhólmi og starfar sem samskiptahönnuður.
Vorið 2014 hóf hún frumraun sína með skáldsögunni Haltu mér slepptu mér.
Amanda & Erik
Bók 2 af 2
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app

