
Haltu mér, slepptu mér
Um bókina
Amanda Berger lifir öruggu og reglubundnu lífi með manni sínum og tveimur unglingsdætrum í úthverfi Stokkhólms þar sem yfirborðið skiptir öllu, og það er mikilvægara að ná árangri en að vera hamingjusamur.
Þegar henni er sagt upp í vinnunni leynir hún því fyrir öllum í umhverfi sínu og fer þess í stað að spinna lygavef. Lygarnar vinda upp á sig og fyrr en varir er Amanda farin að lifa tvöföldu lífi. Um helgar er hún ábyrg húsmóðir í einbýlishúsi í Bromma hverfinu. Á virkum dögum er hún einhleyp flugfreyja í miðbænum með aukastarf í verslun sem selur notaðar vörur. Hún eignast nýja vini og nær í yngri ástmann.
Lífið heldur áfram og Amanda nýtur sinnar nýju tilveru uns einn daginn þegar hún uppgötvar að hún er ekki ein um að segja ósatt.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app