Heim › ...
Það sem ljósið má ekki sjá eftir Lucy Score - hljóðbók

Það sem ljósið má ekki sjá

19 klst 15 mín
Bókafélagið
Bók 2 af 2 í Knockemout

Um bókina

Það sem ljósið má ekki sjá er spennandi rómantísk saga sem notið hefur mikilla vinsælda í Bandaríkjunum og víðar. Nash Morgan lögreglustjóri er ekki eins og hann á að sér að vera eftir að hafa orðið fyrir skotárás og í ofanálag gengur byssumaðurinn laus í smábæ þar sem lög og regla skipta íbúana ekki höfuðmáli. Að fá hina leggjalöngu og kjaftforu Línu Solavita fyrir nágranna er það síðasta sem hann þarf á að halda. Hún laðar fram í honum tilfinningar sem hann sjálfur veit ekki almennilega hvernig hann á að bregðast við.

Lína hefur verk að vinna. Hún ætlar að kveðja um leið og hún hefur fundið það sem hún leitar en íbúarnir í Knockemout eru á öðru máli. Áður en hún veit af er hún orðin hluti af bæjarlínu, röltir um bæinn með hund nágrannans og er á leið með að verða brúðarmær. Og hún stendur á hleri þegar kynþokkafulli lögreglustjórinn í næstu íbúð fer í sturtu. Samband þeirra breytist á augabragði þegar Nash áttar sig á að Lína býr yfir hættulegu leyndarmáli.

Það neistar á milli þeirra en eru það ástarblossar eða hatursbál? Nú reynir á þau bæði. Þora þau að hleypa ástinni inn í líf sitt? Og geta þau það þegar óvinir þeirra láta til skarar skríða? Lucy Score er margfaldur metsöluhöfundur sem oft hefur vermt efsta sætið á metsölulista New York Times.

Það sem ljósið má ekki sjá er sjálfstæð bók í hinni geysivinsælu Knockemout seríu. Fleiri bækur eftir Lucy Score munu koma út á næstu misserum. Lesarar: Þórunn Erna Clausen og Rúnar Freyr Gíslason.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán