Heim › ...
Tengdadóttirin III – Sæla sveitarinnar eftir Guðrún frá Lundi - hljóðbók

Tengdadóttirin III – Sæla sveitarinnar

12 klst 13 mín
Mál og menning
Bók 3 af 3 í Tengdadóttirin

Um bókina

Þegar Hjálmar Þorgeirsson, óðalserfinginn á Hraunhömrum, kemur frá Noregi og hyggst sækja unnustu sína og barn í greipar Sigurfljóðar, fyrrverandi heitkonu sinnar, grípur hann í tómt: Ásta hefur hent trúlofunarhringnum í Sigurfljóð og strokið með son þeirra Hjálmars heim að Heiðargörðum. Þar þarf Hjálmar að mæta Kristínu, móður Ástu, sem er allt annað en sátt við hann. Og Sigurfljóð er líka ákveðin í að gera allt sem hún getur til að koma í veg fyrir brúðkaup Hjálmars og Ástu. Hún telur sig eiga bandamann í Þorgeiri, föður Hjálmars, en er það víst?

Í Tengdadótturinni, sem kom fyrst út 1952-54 í þremur bindum, segir frá ástum og örlögum jafnt sem daglegu lífi til sveita í byrjun 20. aldar. Guðrún frá Lundi hefur einstakt lag á að gæða persónur sínar lífi svo lesandinn hverfur meira en heila öld aftur í tímann. Sæla sveitarinnar er lokabindið í þessum magnaða flokki en nýrrar útgáfu hefur verið beðið lengi.

Silja Aðalsteinsdóttir les bókina en hún ritaði einmitt eftirmála.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 1.490 kr