Um bókina

Precious Ramotswe þarf á öllu innsæi sínu og visku að halda í krefjandi málum; hafa uppi á eiginkonu sem hlaupist hefur að heiman, fletta ofan af óprúttinni vinnukonu og rannsaka afdrif ungs Bandaríkjamanns sem hvarf fyrir tíu árum í Kalaharí-eyðimörkinni.

Alexander McCall Smith þykir takast fádæma vel að flétta saman spennandi atburðarás og húmor, um leið og hann dregur upp sannfærandi og hugstæða mynd af daglegu lífi í Afríku. Sú staðreynd að sögurnar gerast í Afríku gerir að verkum að vandamálin sem þarf að leysa eru fjölbreyttari en í norðrinu.

Þetta er önnur bókin í hinum vinsæla flokki um kvenspæjarann Precious Ramotswe í Botsvana í Afríku sem hlotið hefur einróma lof gagnrýnenda og lesenda um allan heim, enda hafa bækurnar að geyma sjaldgæfa blöndu af spennu, gamansemi og mannúð og skilja eftir sig vellíðan hjá lesanda.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán
  • Eða kauptu á 1.990 kr