
Um bókina
Annar hluti í vinsælli yndisbókaröð Önnu Winthers um Straumey!Eftir farsælan starfsframa stendur John á tímamótum eftir að faðir hans lést. Ástin sem hann ber til Maríu verður til þess að hann vill flytja til Svíþjóðar og prófa eitthvað nýtt.
Þegar býli til leigu býðst á Straumey virðist auðvelt að flytja þangað og leyfa lífinu að taka nýja stefnu.Mona er nýorðin ekkja en því fylgja ýmsar vangaveltur – Hver er hún eiginlega og hvernig langar hana að lifa lífinu framvegis? Síst af öllu vill hún verða einmana svo hún flytur í litla tengdamömmukofann á býlinu á Straumey.
Þegar María skipuleggur sumarbúðir fyrir matgæðinga og ræktunaráhugafólk mætir dularfullur gestur til leiks – hinn stirði og sérkennilegi Folke. Fljótlega kemur í ljós að margt býr bakvið tjöldin hjá honum. Sumar í Skerjagarðinum er hlý og hjartnæm saga sem fjallar um nýtt upphaf, ást og hugrekkið að byrja upp á nýtt.
Í faðmi Skerjagarðsins
Bók 2 af 2
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app

