
Um bókina
Óhugnanlegt morð var framið á bóndabæ sem enginn talar um. Hvaða leyndarmál hefur fólkið á bænum að geyma? Hvað gæti verið verra en þriggja daga skólaferðalag með „Náttúru-Núma“, ofurhressa líffræðikennaranum sem elskar kúamykju?
Fyrir Andrési og Kalla hljómar þetta eins og algjör martröð. Til að stytta sér stundir grípa þeir skýrslu úr málmkassa Madsen rannsóknarlögreglumanns. Um er að ræða skuggalegt morð á ungum manni sem gerðist á bóndabænum sem þeir eru að fara til. Fullkomið!
Á bóndabænum mæta þeir tómum götum, óhugnanlegri þögn og undarlegu fólki. Vinirnir uppgötva söfnuð sem hittist í skjóli nætur. Hvað ætli talan 666 þýði? Hefur söfnuðurinn einhvað með morðið að gera? Leiðinlegt skólaferðalag breytist fljótt í lífshættulegan eltingarleik þar sem Andrés og Kalli eiga á hættu að verða blóðfórnir. Munu þeir komast undan? Ef þú ert að leita að einhverju í anda The Hardy Boys um unga ævintýra gjarna stráka sem ákveða að rannsaka lögreglumál upp á eigin spýtur þá er Skýrsla X serían frábær kostur.
Skýrsla X Hús rannsóknarlögreglumannsins Madsen brennur til kaldra kola. Í öskunni finnur strákurinn Andrés gamlan málmkassa. Þar er að finna fullt af gömlum skýrslum. Þetta eru óleyst mál sem Madsen hafði unnið að en nú er hann dáinn. Sögurnar í „Skýrsla X“ fjalla um Andrés og Kalla vin hans, sem ákveða að taka nokkrar af skýrslunum í sínar eigin hendur og reyna að rannsaka og leysa gömlu sakamálin. Peter Grønlund (f. 1970) er höfundur sem sérhæfir sig í menningu undirheimanna og skuggahliðunum í dönsku samfélagi en hann hefur skrifað nokkrar þekktar og vinsælar bækur um þau málefni.
Hann hefur meðal annars skrifað bækur um veggjakrot í Danmörku, ríkisfangelsið í Vridsløselille og ævisögu glæpamannsins Lonne.
Skýrsla X
Bók 2 af 16

Skýrsla X – Mótorhjólagengið

Skýrsla X - Mótorhjólagengið

Skýrsla X – Vampírusöfnuðurinn

Skýrsla X - Vampírusöfnuðurinn

Skýrsla X – Gröfin

Skýrsla X - Gröfin

Skýrsla X – Brennuvargurinn

Skýrsla X - Brennuvargurinn

Skýrsla X – Gleraugnaslangan

Skýrsla X - Gleraugnaslangan

Skýrsla X – Kjallarinn

Skýrsla X - Kjallarinn

Skýrsla X – Spilliefnin

Skýrsla X - Spilliefnin

Skýrsla X – Afskorinn

Skýrsla X - Afskorinn
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app