
Um bókina
Hús í bænum eru að brenna til grunna. Vísbendingar leiða í ýmsar áttir. Hver ætli sé að leika sér að eldi? Í málmkassa Madsen rannsóknarlögreglumanns finna Andrés og Kalli eina mjög þykka skýrslu sem vekur upp forvitni þeirra.
Í ljós kemur að í henni eru sjö stór brunamál sem öll hafa átt sér stað á sömu götu, Eikarvegi. Málin eru enn óleyst. Lögreglan hafði einungis einn grunaðan en strákarnir átta sig fljótt á því að hann er með trausta fjarvistarsönnun. Hver er þá hin raunverulegi brennuvargur?
Þegar rannsókninni miðar áfram og strákarnir fara að spyrja of margra spurninga, átta þeir sig á að einhver fylgist með þeim. Sannleikurinn er mun óhugnanlegri en þeir hefðu getað ímyndað sér og fyrr en varir logar eldur á ný. Ná þeir að leysa málið áður en allt brennur til ösku? Ef þú fílar leyndarmál, gamlar vísbendingar og vini sem lenda alltaf í veseni þá er serían Skýrlsa X fullkomin fyrir þig.
Í anda Njósnaþrenningarinnar er fylgst með tveimur vinum rannsaka gömul lögreglumál sem hafa verið óleyst. Skýrsla X Hús rannsóknarlögreglumannsins Madsen brennur til kaldra kola. Í öskunni finnur strákurinn Andrés gamlan málmkassa. Þar er að finna fullt af gömlum skýrslum.
Þetta eru óleyst mál sem Madsen hafði unnið að en nú er hann dáinn. Sögurnar í „Skýrsla X“ fjalla um Andrés og Kalla vin hans, sem ákveða að taka nokkrar af skýrslunum í sínar eigin hendur og reyna að rannsaka og leysa gömlu sakamálin. Peter Grønlund (f. 1970) er höfundur sem sérhæfir sig í menningu undirheimanna og skuggahliðunum í dönsku samfélagi en hann hefur skrifað nokkrar þekktar og vinsælar bækur um þau málefni. Hann hefur meðal annars skrifað bækur um veggjakrot í Danmörku, ríkisfangelsið í Vridsløselille og ævisögu glæpamannsins Lonne.
Hlusta hvar sem er
- Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
- Hlusta án nettengingar
- Samstilling á milli tækja
- Frá 1.490 kr/mán
Sækja app



