Heim › ...
Síðasta bréfið til Svíþjóðar eftir Vilhelm Moberg - hljóðbók

Síðasta bréfið til Svíþjóðar

12 klst 43 mín
Hljóðbók.is
Bók 4 af 4 í Vesturfararnir

Um bókina

Síðasta bréfið til Svíþjóðar er fjórði og síðasti hluti sögu Mobergs um Karl Óskar og Kristínu sem námu land í Ameríku á seinni hluta 19. aldar ásamt fjölda annarra Svía og Evrópubúa. Þau voru meðal fyrstu landnemanna sem settust að á yfirráðasvæði Chippewa-indíána við Ki-Chi-Saga vatn.Börnunum á Nýja-Dúfulandi hefur fjölgað, búið stækkað og ýmis lífsþægindi eru komin til sögunnar.

En nú er tilveru landnemanna ógnað. Á milli Norður- og Suðurríkjanna geisar blóðug borgarastyrjöld í forsetatíð Abrahams Lincoln, indíánarnir sem hafa verið rændir veiðilendum sínum gera heiftúðuga uppreisn, sértrúarsöfnuðir skjóta upp kollinum og hörð átök hefjast um mismunandi kenningar. Einhverjir telja sig heyra grát englanna á himnum og gleðilæti djöflanna í helvíti. Alvarleg slys eiga sér stað og veikindi herja á fjölskylduna.Eftir viðburðarík ár færist aldurinn yfir söguhetjurnar sem skilað hafa drjúgu ævistarfi og tekið þátt í miklum sviptingum.

Ný kynslóð er að taka við keflinu, fólk sem vill ekki muna gamla tímann, hefur nýja siði til vegs og virðingar og horfir bjartsýnt fram á veginn.

Hlusta hvar sem er

  • Aðgangur að hundruðum hljóðbóka
  • Hlusta án nettengingar
  • Samstilling á milli tækja
  • Frá 1.490 kr/mán